Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK-2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Aflinn var blandaður, um 131 tonn þar sem uppistaðan var þorskur og ýsa. Drangey var meðal annars á veiðum á Kantinum vestan við Hala og Víkurál.
Málmey SK1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 154 tonn, uppistaða aflans var þorskur og ufsi. Málmey var meðal annars á veiðum á Reykjafjarðarál og Djúpkrók.