„Aflinn er nær eingöngu þorskur“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki.  Heildarmagn afla um borð var 208 tonn. Heimasíðan hafði samband við Andra Má Welding stýrimann.

„Veiðiferðin að þessu sinni voru tveir sólarhringar, við byrjuðum á Strandagrunni og enduðum á Reykjafjarðaál.  Veiðarnar gengu mjög vel og það var mokveiði allan tímann, aflinn er nær eingöngu þorskur.  Veðrið hefur verið alveg dásamlegt“ segir Andri.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter