Drangey SK2 landar á Sauðárkróki.

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Á milli jóla og nýárs hélt Drangey af stað til veiða og kom til hafnar á Sauðárkróki þann 30.12.19 s.l með 100 tonn af því voru um 83 tonn af þorski, 7 tonn af ufsa, 4 tonn af ýsu og 2 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Drangey var á veiðum á Sléttugrunni og Rifsbanka í ágætri veiði.

Drangey hélt aftur til veiða á nýju ári og kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar með 100 tonn af því voru um 59 tonn af þorski, 19 tonn af ufsa, 15 tonn af ýsu og 2 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Drangey var á veiðum við Þverálshorn.

 

Áætlað er að Drangey haldi aftur til veiða að löndun lokinni.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter