Farsæll SH30 og Sigurborg SH12 landa í Grundarfirði

 Í Farsæll SH 30, Fréttir, Sigurborg SH 12

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði með 52 tonn, af því voru um 15 tonn af þorski, 10 tonn af ýsu og 3 tonn af karfa. Sigurborg SH 12 kom einnig til hafnar í Grundarfirði með 46 tonn. Af því voru um 17 tonn af þorski og 10 tonn af ýsu. Minna í öðrum tegundum hjá báðum skipum. Afli Farsæls veiddist meðal annars við Herðatré og Sigurborgar við Nesdýpi.

Áætlað er að Farsæll og Sigurborg haldi aftur til veiða á löndun lokinni.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter