Sigurborg SH12 með fullfermi

 Í Fréttir, Sigurborg SH 12

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði með fullfermi, uppistaða aflans var að mestu ufsi.  Heimasíðan ræddi við Guðbjörn skipstjóra „Veiðiferðin hjá okkur var um fimm sólarhringar í það heila, en við vorum við veiðar í fjóra sólarhringa.  Vorum bæði á veiðum við Selvogsbanka og vestur af Garðskaga, veiðin var nokkuð góð á Selvogsbankanum í ufsa.  Veðrið var bara sæmilegt þennan túrinn“ segir Guðbjörn.

 

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter