„Veiðin var fín fyrir austan“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 110 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Andra Má Welding Hákonarson stýrimann og spurði um túrinn.

„Við vorum rúma þrjá sólarhringa á veiðum. Við byrjuðum úti fyrir Norðurlandi en þar var lítið að hafa og enduðum í Hvalbakshallinu. Veiðin var fín fyrir austan og það er búið að vera ágætis veður,“ sagði Andri.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter