„Við hittum á mikið af þorski“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 116 tonn, uppistaða aflans var þorskur.  Rætt var við Ágúst Ómarsson skipstjóra „Við vorum tæpa tvo sólarhringa á veiðum á Flugbrautinni sem er veiðislóð fyrir utan Snæfellsnes.  Við hittum á mikið af þorski sem er á útleið þarna.  Bongó blíða allan túrinn, hæg NA átt og fremur kalt“ segir Ágúst.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter