Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði.

Farsæll SH 30 kom til hafnar í Grundarfirði með 57 tonn, af því voru um 17 tonn af þorski, 13 tonn af ufsa, 11 tonn af ýsu og 7 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Farsæll var meðal annars á veiðum við halann. Ætlað er að hann haldi aftur til veiða að löndun lokinni.

Málmey SK 1 með fullfermi.

Málmey SK 1 kom til hafnar á Sauðárkróki með fullermi eða um 211 tonn. Þar af voru um 194 tonn af þorski, 2 tonn af karfa og 1 tonn af Ufsa. Minna í öðrum tegundum. Aflinn veiddist meðal annars við Héraðsflóa og Glettinganesflak. Áætlað er að Málmey haldi aftur á miðinn að löndun lokinn.