Farsæll SH30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 kom til hafnar í Grundarfirði með 56 tonn. Þar af voru um 20 tonn af þorski, og 12 tonn af ýsu. Minna í öðrum tegundum. Farsæll var meðal annars á veiðum við Nesdýpi og Herðatré. Áætlað er að Farsæll haldi aftur til veiða að löndun lokinni.
Málmey SK1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki með 167 tonn, af því voru um 122 tonn af þorski, 21 tonn af ufsa, 13 tonn af ýsu og 2 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Aflinn veiddist meðal annars við Brettingsstaði, Sléttugrunn og Skápinn. Áætlað er að Málmey haldi aftur til veiða að löndun lokinni.