Farsæll SH30 og Sigurborg SH12 landa í Grundarfirði

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði með 52 tonn, af því voru um 15 tonn af þorski, 10 tonn af ýsu og 3 tonn af karfa. Sigurborg SH 12 kom einnig til hafnar í Grundarfirði með 46 tonn. Af því voru um 17 tonn af þorski og 10 tonn af ýsu. Minna í öðrum […]

Málmey SK1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki með 178 tonn, af því voru um 105 tonn af þorski, 49 tonn af ufsa, 7 tonn af ýsu og 7 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Aflinn veiddist meðal annars við Rifsbanka og Sléttugrunn. Áætlað er að Málmey haldi aftur til veiða að löndun lokinni.