„Mörg skip að bítast um það sama“

Drangey SK2 landar í heimahöfn á Sauðárkróki í dag. Heildarmagn afla um borð er 173 tonn, uppistaða aflans er þorskur. Heimasíðan hafði samband við Andra Má Welding stýrimann og spurði um túrinn. „Við vorum um sex daga á veiðum og vorum á Skagagrunni, Þverál, Þverálshorni og Halanum. Veiðarnar hafa gengið ágætlega en það eru mörg […]
Farsæll SH30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var 62 tonn, þar af um 35 tonn af þorski. Farsæll var meðal annars á veiðum á Nesdýpi og á Halanum
Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 83 tonn, uppistaða aflans var þorskur. Sigurborg var m.a á veiðum á Nesdýpi.