Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 78 tonn, uppistaða aflans var þorskur og steinbítur. Sigurborg var m.a á veiðum í Grunnkanti og Nesdýpi.
Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 159 tonn og uppistaða aflans voru um 100 tonn af þorski. Drangey var meðal annars á veiðum í Kantinum vestan við Halann.