Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Í morgun landaði Sigurborg SH12 í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var 78 tonn og er uppistaðan steinbítur og ýsa. Sigurborg var meðal annars á veiðum á Nesdýpi og Grunnkanti.
Drangey SK-2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK-2 kom til hafnar í morgun. Aflinn var blandaður, alls 133 tonn þar sem uppistaðan var þorskur, ýsa, karfi og ufsi. Drangey var meðal annars á veiðum á Víkurál og Sporðagrunni.