Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK-2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Aflinn var blandaður, um 123 tonn þar af um 107 tonn af þorski. Drangey var meðal annars á veiðum á Glettinganesflaki og Digranesflaki.
Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 71 tonn og var aflinn blandaður, þ.á.m. 34 tonn af ýsu og 16 tonn af þorski. Sigurborg var m.a á veiðum á Látragrunni og Spilli.