Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey

Drangey SK-2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Aflinn var blandaður, um 169 tonn þar af um 123 tonn af þorski og 33 tonn af ýsu. Drangey var meðal annars á veiðum á Glettinganesflaki og Digranesflaki.

Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 60 tonn og var aflinn blandaður, þ.á.m. 25 tonn af ýsu og 15 tonn af þorski. Sigurborg var m.a á veiðum á Búrbanka og Grunnhala.