Málmey SK1 landar á Sauðárkróki.

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar í gær, 19. desember Heildarmagn afla um borð var um 80 tonn, uppistaða aflans var þorskur. Málmey var m.a. á veiðum á Strandagrunni og Þverálshorni.  

Túrinn endaði fyrr en áætlað var.

Arnar Hu1

Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki í dag, 20. desember. Veiðiferðin hófst að kveldi 29. nóvember s.l, og spannar hún því um 20 daga. Haft var samband við skipstjórann á Arnari sem sagði veðrið hafa verið mjög gott framan af, en sökum brælu síðustu daga hafi túrinn endað fyrr en áætlað var. Arnar var […]

Drangey SK2 landar á Sauðárkróki.

Drangey

Drangey SK2 landar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð er um 213 tonn, uppistaða aflans er þorskur. Drangey var á veiðum á Dohrnbanka.

Þorskur, ufsi og ýsa uppistaða aflans.

Málmey

Málmey SK1 landar á Sauðárkróki í dag. Heildarmagn afla um borð er um 126 tonn, uppistaða aflans er þorskur, ufsi og ýsa. Málmey var m.a. á veiðum á Halanum og á Þverálshorni.

Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði.

Sigurborg SH12 kom til hafnar  í Grundarfirði í gær, 11. desember til löndunar. Heildarmagn afla um borð var um 54 tonn, uppistaða aflans var ýsa, þorskur, steinbítur og karfi. Sigurborg var m.a. á veiðum á Látragrunni og á Hornáli.

Farsæll SH30 landar í Grundarfirði.

Farsæll SH30 landar í Grundarfirði í dag. Heildarmagn afla um borð er 51 tonn, uppistaða aflans er þorskur, ýsa og karfi. Farsæll var m.a. á veiðum á Bjargbleyðu og Agötu.

Þorskur er uppistaðan.

Málmey SK1 landar á Sauðárkróki í dag, eftir 4,5 sólarhringa á veiðum. Veiðarnar gengu rólega í túrnum, en veðrið var gott. Heildarmagn afla um borð er 90 tonn, uppistaða aflans er þorskur og var Málmey á veiðum á Þverálshorni.

Farsæll SH30 landar í Grundarfirði.

Farsæll SH30 landar í Grundarfirði í dag. Heildarmagn afla um borð er um 57 tonn, uppistaða aflans er þorskur, ýsa og karfi. Farsæll var m.a. á veiðum á Austurhorni og á Straumnesbanka.