Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK2 landar á Sauðárkróki í dag. Heildarmagn afla um borð er um 159 tonn, uppistaða aflans eru 123 tonn af þorski og 24 tonn af ýsu. Drangey var m.a. á veiðum á Skagagrunni.
Farsæll SH30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 69 tonn, þar af um 27 tonn af skarkola og 18 tonn af ýsu. Farsæll var meðal annars á veiðum á Búrbanka og vestur af Garðskaga.
Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 92 tonn og var aflinn blandaður, þ.á.m. 42 tonn af skarkola, 18 tonn af þorski og 17 tonn af ýsu. Sigurborg var m.a á veiðum vestan Garðskaga.