Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði til löndunar. Heildarmagn afla um borð er um 71 tonn, uppistaða aflans er ýsa og þorskur. Sigurborg var m.a. á veiðum á Grunnkantinum.
Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar. Heildarmagn afla um borð var um 138 tonn og uppistaða aflans var þorskur, karfi og ýsa. Drangey var m.a. á veiðum á Kolbeinseyjarsvæðinu.