Arnar HU1 landar á Sauðárkróki.

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar. Heildarmagn afla um borð var um 636 tonn af fiski upp úr sjó, af því voru um 186 tonn af gullkarfa, 157 tonn af ýsu, 125 tonn af ufsa og 120 tonn af þorski. Minna í öðrum tegundum. Heildarverðmæti afla er um 244 milljónir króna. […]

Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar. Heildarmagn afla um borð var um 134 tonn, uppistaða aflans þorskur og karfi. Drangey var m.a. á veiðum á Kantinum v. við Halann.  

Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði til löndunar. Heildarmagn afla um borð er um 73 tonn, uppistaða aflans er ýsa, þorskur og karfi. Sigurborg var m.a á veiðum á Grunnkanti og Látragrunni.