Arnar HU1 landaði á Sauðárkróki

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar. Heildarmagn afla um borð var um 639 tonn af fiski upp úr sjó, af því voru um 206 tonn af ýsu, 147 tonn af gullkarfa, 146 tonn af ufsa og 130 tonn af þorski. Minna í öðrum tegundum. Heildarverðmæti afla er rúmlega 240 milljónir.
Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar. Heildarmagn afla um borð er um 209 tonn, uppistaða aflans er þorskur. Drangey var á veiðum á Dohrnbanka.
Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði til löndunar. Heildarmagn afla um borð er um 74 tonn, uppistaða aflans er ýsa, þorskur og karfi. Sigurborgin var m.a. á veiðum á Látragrunni.