Arnar HU1 landar á Sauðárkróki

Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar. Heildarmagn afla um borð var um 566 tonn af fiski upp úr sjó, af því voru um 168 tonn af gullkarfa, 153 tonn af ýsu, 122 tonn af þorski, og 110 tonn af ufsa. Minna í öðrum tegundum. Heildarverðmæti afla er um 215 milljónir.  

Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar. Heildarmagn afla um borð er um 123 tonn, uppistaða aflans er þorskur. Drangey var m.a. á veiðum á Sléttugrunni.

Sigurborg SH12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði til löndunar. Heildarmagn afla um borð er um 68 tonn, uppistaða aflans ýsa, þorskur og steinbítur Sigurborg var m.a. á veiðum á Nesdýpi og Grunnkanti.