Arnar HU1 landar á Sauðárkróki

Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar. Heildarmagn afla um borð var um 556 tonn af fiski upp úr sjó, af því voru um 472 tonn af þorski, 25 tonn af ýsu, 18 tonn af skrápflúru, og 17 tonn af gullkarfa. Minna í öðrum tegundum. Heildarverðmæti afla er um 236 milljónir.
Málmey SK1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar. Heilarmagn afla um borð er um 125 tonn, uppistaða aflans er þorskur og ýsa. Málmey var m.a. á veiðum á Halanum.