Drangey SK2 landar á Sauðárkróki

Drangey

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki til löndunar. Heildarmagn afla um borð er um 97 tonn, uppistaða aflans er ufsi, þorskur og ýsa. Drangey var m.a. á veiðum á Kantinum vestan við Halann.