Takið daginn frá!

Umhverfisdagur FISK Seafood verður þann 9. maí árið 2026 og sem fyrr hvetjum við alla til þess að mæta og styrkja sitt íþróttafélag. Árið 2025 mættu 927 manns á öllum aldri og söfnuðu samtals 21,4 tonnum af sorpi víðs vegar um Skagafjörð og voru rúmlega 11 milljónir króna samtals greiddar í styrki til 16 íþróttafélaga! […]