Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Siguborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með 69 tonna afla. Þar af voru um 21,5 tonn af þorski og um 18,5 tonn af ýsu. Sigurborg var meðal annars á veiðum við Nesdýpi og Grunnkant.
Farsæll SH 30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH 30 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í gær með 46 tonna afla, þar af um 25 tonn af þorski og um 12 tonn af ýsu. Farsæll var meðal annars á veiðum við Suðurkant og Flökin. “Þetta var nú endastuttur túr, ég held við höfum verið einn og hálfan sólarhring á veiðum.” Sagði Jóhann […]
Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með 84 tonn af afla. Þar af voru um 65 tonn af þorski Að sögn Ágústs Óðins Ómarssonar, skipstjóra, var þessi túr frekar erfiður. Hann byrjaði á norð-austan brælu og síðan kom suð-vestan bræla. Það hafi verið mjög vont að eiga við þetta, svo loksins […]