Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun. Í skipinu voru um 106 tonn, næstum eingöngu þorskur, eða um 97 tonn af honum. Málmey hóf túrinn á Ostahrygg, hélt svo til Kolbeinseyjar og tók nokkur höl norðan við hana, þá tók hún eitt hal á Gamla Skratta áður en haldið var á Sléttugrunn. […]