„Veiðarnar gengu þokkalega“
Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 147 tonn, uppistaða aflans var að mestu þorskur. Heimasíðan ræddi við Bárð Eyþórsson skipstjóra „Veiðiferðin stóð yfir í sex sólarhringa, en við vorum á veiðum í tæplega fimm. Við vorum m.a. í Jökuldýpi, Eldeyjarbanka og á Halanum, veiðarnar gengu þokkalega það voru að koma góð skot í þær. Við fengum allar tegundir af veðri í túrnum, alveg frá rjómablíðu og yfir í 30 metra“ segir Bárður.