Sigurborg SH12 með fullfermi
Sigurborg SH12 kom til hafnar í Grundarfirði með fullfermi, uppistaða aflans var að mestu ufsi. Heimasíðan ræddi við Guðbjörn skipstjóra „Veiðiferðin hjá okkur var um fimm sólarhringar í það heila, en við vorum við veiðar í fjóra sólarhringa. Vorum bæði á veiðum við Selvogsbanka og vestur af Garðskaga, veiðin var nokkuð góð á Selvogsbankanum í ufsa. Veðrið var bara sæmilegt þennan túrinn“ segir Guðbjörn.