„Veiðin var mjög góð“
Málmey SK1 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 200 tonn. Rætt var við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra „Við vorum rúma þrjá sólarhringa á veiðum í Skerjadýpi, Selvogsbanka og á Eldeyjarbanka. Það var mjög góð veiði og gott veður allan tímann, uppistaða aflans er þorskur og karfi, minna af öðrum tegundum“ segir Þórarinn.