„Það hefur verið snúið að fá þorsk á togara slóðum“
Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 149 tonn, uppistaða aflans var þorskur og ufsi. Heimasíðan ræddi við Ágúst Ómarsson skipstjóra „Við vorum fimm sólarhringa á veiðum, settum niður troll víða. Leituðum víða af þorski fyrir norðan land, en fengum ágæta veiði á Grímseyjarsvæðinu. Það hefur verið snúið að fá þorsk á togara slóðum, því kynþroska þorskur er upp í fjöru að sinna tilhugalífinu. Urðum varir við ufsa í restina á túrnum. Blíða allan túrinn og rennisléttur sjór“ segir Ágúst.
Drangey við Grímsey, Mynd: Sigtryggur Gíslason.