Málmey SK1 landar í Grundarfirði.
Málmey SK1 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 184 tonn. Heimasíðan ræddi við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra „Við vorum tæpa sex sólarhringa á veiðum í Skerjadýpi, Eldeyjarbanka og á Flugbrautinni. Uppistaða aflans er að mestu djúpkarfi og ufsi, en smávegis var af þorski og ýsu. Veðrið var gott fyrri hlutann en hryssings kaldi var síðustu dagana“ segir Þórarinn.