„Við vorum að veiðum í rjómablíðu“
Drangey SK2 kom til hafnar í Grundarfirði.
Heimasíðan ræddi við Bárð Eyþórsson skipstjóra „Við vorum að veiðum í rjómablíðu á Selvogsbanka. Það var þokkaleg veiði en vantaði aðeins upppá veiðina í þorski. Hann er ekki búinn að hrygna og þar af leiðandi ekki byrjaður að ganga út aftur. Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum“ segir Bárður.