„Góð veið og gott veður allan túrinn“
Málmey SK1 kom til hafnar í Grundarfirði.
Heimasíðan hafði samband við Hermann Einarsson skipstjóra „Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum og fengum c.a. 193 tonn, mest þorsk. Við vorum á suðvestur miðum, byrjuðum á Flugbrautinni, fórum svo á Eldeyjarbanka og enduðum svo á Flugbrautinni. Góð veið og gott veður allan túrinn“ segir Hermann.