„Mokveiði á Halanum“
Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 214 tonn, uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan sló á þráðinn til Ágústs Ómarssonar skipstjóra.
„Fiskeríið var gott á Kantinum vestan við Halann og við enduðum tæplega fimm sólarhringa veiðiferð í mokveiði á Halanum. Það var mikið líf í sjónum, æti, hvalur og smáhveli við Halann. Allan túrinn var blíða og sléttur sjór“ segir Ágúst.