„Það var mokveiði á öllum stöðum“
Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 166 tonn.
Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra
„Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum, byrjuðum í Þverál, færðum okkur svo yfir í Nesdýpi og enduðum veiðiferðina í Reykjafjarðarál. Það var mokveiði á öllum stöðum, uppistaða aflans var þorskur. Veðrið var heilt yfir mjög gott“ segir Þórarinn.