„Síðasta sólarhringinn var suðaustan kaldi“
Farsæll SH30 er á leið til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 69 tonn og uppistaða aflans voru 16 tonn af karfa og 3 tonn af þorski. Heimasíðan hafði samband við Stefán V. Ólafsson stýrimann og spurði út í túrinn.
„Í þessari veiðiferð vorum við um fjóra sólarhringa á veiðum vestur á Agötu. Þar var nokkuð jöfn veiði í steinbít og karfa. Blíðu veður var mest allan túrinn en síðasta sólarhringinn var suðaustan kaldi“, sagði Stefán.