„Rólegt yfir veiðunum þennan túrinn“
Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 48 tonn og uppistaða aflans voru um 16 tonn af þorski og 11 tonn af ýsu. Farsæll var meðal annars á veiðum á Nesdýpi og Grunnhala. Heimasíðan hafði samband við Stefán Viðar Ólason stýrimann og spurði út í túrinn.
„Við vorum á veiðum í fimm sólarhringa í þessum túr. Við vorum mest á grunnslóðinni út af Vestfjörðum en fórum líka út á Hala á meðan veðrið var í lagi. Það var frekar rólegt yfir veiðunum þennan túrinn. Veðrið var bara frekar leiðinlegt, ég held að það hafi einn dagur verið góður,“ sagði Stefán.