„Fengum mjög góða veiði í restina“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 110 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Andra Má Welding Hákonarson stýrimann og spurði um túrinn.

„Við gátum verið á veiðum í þrjá sólarhringa, vorum í kantinum vestan við Halann og enduðum í Þverálnum. Veiðarnar voru rólegar framan af en við fengum mjög góða veiði í restina í Þverálnum. Veðrið var mjög slæmt fyrstu dagana, við þurftum að leita í var í tvígang í túrnum. Það var hvöss suðvestan átt og hauga sjór en ágætis veður síðasta sólarhringinn,“ sagði Andri.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter