„Það var norðaustan skíta bræla“
Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 69 tonn og uppistaða aflans var skarkoli. Heimasíðan hafði samband við Stefán Viðar Ólason stýrimann og spurði út í túrinn.
„Við vorum sex daga í þessari veiðiferð. Við vorum á Breiðafirði allan þennan túr. Það var norðaustan skíta bræla í þessum túr,“ sagði Stefán Viðar.