Veiðin var jöfn
Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 75 tonn og uppistaða aflans var skarkoli og steinbítur. Heimasíðan hafði samband við Guðmund Kristján Snorrason skipstjóra og spurði út í túrinn.
„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum og vorum á Vestfjarðarmiðum, mest í Nesdýpi. Veðrið var fínt mest allan túrinn og veiðin jöfn, mest af kola, steinbít og þorski,“ sagði Guðmundur.