Veðrið var með besta móti
Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð var um 55 tonn og uppistaða aflans var skarkoli. Heimasíðan hafði samband við Stefán Viðar Ólason stýrimaður og spurði út í túrinn.
„Í þessari veiðiferð vorum við í um fimm sólarhringa á veiðum vestur af Garðskaga. Við vorum þar allan túrinn, fyrir utan einn sólarhring þegar við fórum á Eldeyjarbanka. Veiðin var nokkuð jöfn og veðrið var með besta móti,“ sagði Stefán Viðar.