„Mikið um ís“
Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 148 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.
„Við vorum fimm og hálfan sólarhring á veiðum og vorum á Þverálshorni, Þverál og Kögurgrunni. Veiðarnar voru þokkalegar á daginn, en sáralitlar á nóttunni. Það var mikið um ís á svæðinu, við hröktumst undan honum fram og til baka eftir vindátt og straum. Veðrið var ágætt á köflum,“ sagði Þórarinn.