„Við fórum víða í þessum túr“

 Í Farsæll SH 30, Fréttir

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 69  tonn. Heimasíðan hafði samband við Stefán Viðar Ólason stýrimaður og spurði út í túrinn.

„Þessi veiðiferð var um sex dagar og þar af voru um fimm á veiðum. Við fórum víða í þessum túr, suður fyrir land og norður á vestfjarðarmið. Veiðarnar gengu þokkalega í byrjun en dró svo úr þeim þegar við færðum okkur uppá grunnslóðina. Blíðskapar veður var þennan túr fyrir utan einn dag þegar fór í norðaustan átt 15-20m/s,“ sagði Stefán.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter