„Veiðarnar gengu bara ágætlega“
Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 172 tonn og uppistaða aflans var þorskur.
Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.
„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum og vorum á Þverálshorni og í Kantinum vestan við Hala. Veiðarnar gengu bara ágætlega og veðrið var gott allan túrinn,“ sagði Þórarinn.