Farsæll SH30 landar í Grundarfirði

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði til löndunar.

Heildarmagn afla um borð er um 93 tonn, uppistaða aflans er karfi, ýsa og þorskur.

Farsæll var m.a. á veiðum á Spilli og við Bjarg.