Málmey SK 1 kom til löndunar á Sauðárkrókshöfn í morgun. Heildarmagn afla var um 148 tonn, uppistaða þorskur og ýsa. Málmey var meðal annars á veiðum Norðan við Hraun og á Ostahrygg.
Veður var ágætt allan túrinn og þorskveiði gekk vel en það var rólegt í ýsunni, að sögn bátsmanns.