Farsæll SH 30 er á leið til löndunar við Grundarfjarðarhöfn og er væntanlegur kl 16:00 í dag með rúm 68 tonn af fiski. Þar af eru rúm 25 tonn af ýsu, tæp 12 tonn af þorski og rúm 14 tonn af skarkola, en minna í öðrum tegundum.
“Við erum bara á leið í land, það er allt orðið fullt. Veiðin gekk bara vel – jöfn og góð. Hittum strax í ýsu og kláruðum skammtinn mjög fljótlega, eftir það var jöfn veiði í algjöru blandi.” Sagði Guðmundur Kristján Snorrason, skipstjóri.
Farsæll var aðallega á veiðum við Flökin, í kringum Bjarg og við 200 lænuna. En 200 lænan er sandlæna sunnan við Flökin og liggur hún í 200 línunni í Lóran tölum, þannig fékk hún nafnið sitt að sögn Guðmundar.
En fyrir tilkomu GPS studdust sjómenn við svokallað Loran C kerfi sem er leiðsagnarkerfi sem var þróað í Bandaríkjunum í seinni heimsstyrjöldinni og er þannig byggt upp nokkrar stöðvar á landi senda út mjög nákvæm tímasett útvarpsmerki og tæki um borð í skipum mælir tímamuninn á því hvenær merki frá mismunandi stöðvum berast, út frá þessum tímamuni var hægt að reikna stæðsetningu svipaða og GPS, en með minni nákvæmni.
Látum til gamans fylgja með mynd úr Sjómannablaðinu Víkingi, 10. tölublaði árið 1980, þar sem slík tæki eru auglýst til sölu.