Arnar HU 1 – Æfing með landhelgisgæslu

Á dögunum fengu skipverjarar um borð í Arnari HU 1 beiðni frá þyrlusveit landhelgisgæslunnar um að taka þátt í sjóbjörgunaræfingu með þeim og Arnarsmenn urðu að sjálfsögðu við þeirri beiðni.

Æfingin fór þannig fram að starfsmaður landhelgisgæslu var látinn síga niður um borð í skipið ásamt lækni og börum, þetta var æft í tvígang, en verið var að æfa móttöku sjúkraflutningsmanna.

“Það gerist ekki mjög oft að við fáum beiðni frá landhelgisgæslunni um að taka þátt í svona æfingu, þessvegna er mikilvægt að nýta sér það þegar kallið kemur.” Sagði Patrik Snær Bjarnason, 1. vélstjóri. Hann sagði æfinguna hafa gengið mjög vel þrátt fyrir krefjandi aðstæður, en það var um 18 m/s vindur meðan á æfingunni stóð.

Í öðrum fréttum af Arnari sagði Patrik að túrinn færi ágætlega af stað, en þrír sólarhringar voru liðnir síðan þeir hófu veiðar og “bara ágætis ýsukropp”. Veðrið hefur ekki verið skemmtilegt hjá þeim fyrir vestan land en framundan er blíðuspá, svo framhaldið lítur ágætlega út en Arnar er væntanlegur í land næst þann 5. mars.

Myndir og myndbönd eru frá Kristjáni Pétri Guðjónssyni, netamanni og Bárði Eyþórssyni, skipstjóra.