Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 kom til löndunar í Grundarfirði í morgun með heildarafla upp á tæp 66 tonn. Aflinn var frekar blandaður, tæp 20 tonn af þorski, rúm 12 tonn af ýsu, tæp 11 tonn af skarkola og rúm 12 tonn af steinbít en minna í öðrum tegundum.

Sigurborg var aðallega á veiðum við Flökin og Spilli. “Veiðin gekk svosem ágætlega, en við vorum að leita að ýsu og það gekk ekki eins vel. Aflinn var mjög blandaður og minni kolaveiði en venjulega.” Sagði Ómar Þorleifsson , skipstjóri, “Annars er veðrið búið að vera gott, ég held að þetta sé bara veðursælasti vetur sem ég man eftir í langan tíma.”