Drangey SK 2 landar á Sauðárkróki

Drangey SK 2 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 117 tonna afla. Þar af voru tæp 69 tonn af þorski og rúm 23 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum.

Drangey var á meðal annars á veiðum við Þverálshorn, á kantinum vestan við Hala og Norður af Horni. Ágúst Óðinn Ómarsson skipstjóri sagði þetta hafa verið frekar tíðindalausan túr, en veiðin hafi verið fín í þorski og gengið vel að klára skammtinn þar, en minni skammtar í ýsu og öðrum tegundum.